Sýndu líkamanum virðingu –

Allir líkamar eiga skilið virðingu – líka þinn.

-Ragnheiður Guðjónsdóttir

Heilsuráð vikunnar #22 - Sýndu líkamanum virðingu

 

Ímyndaðu þér að líkami þinn sé þinn besti vinur. Hvað myndirðu gera öðruvísi? Hvernig myndirðu tala til hans? Hverju myndirðu taka eftir? Fyrir hvað værirðu þakklát?

Það getur verið erfitt að byrja sýna líkama okkar virðingu ef við erum ekki í æfingu. Hér eru 7 góðar leiðir til að byrja.

 

NR. 1 – Kauptu þægileg föt sem passa.

 

Líkami þinn á það skilið að vera í fötum sem passa og þér finnst gott og þægilegt að vera í. “Beauty is pain” er svo búið að vera. Það er enginn að segja að þú þurfir að verða þræll tískunnar og elta nýjustu tískustrauma í sífellu, bara að þú veljir það sem þér finnst fallegt og þægilegt.

Sýndu þér samkennd og virðingu og keyptu föt fyrir líkama þinn eins og hann er í dag, ekki eins og hann mögulega gæti orðið eftir nokkrar vikur/mánuði/ár. Þetta á líka við um undirföt og sérstaklega brjóstahaldara. Hversu oft hefðurðu beðið með að kaupa brjóstahaldara af því að … ?

Það á að vera hægt að finna þægileg undirföt í réttri stærð.

Það er ekkert sérstaklega þægilegt að vera í of litlum fötum sem maður þarf alltaf að vera að teygja og toga til að þau haldist á „réttum“ stað. Það gerir lítið annað en að minna mann á hversu óánægður maður er með líkama sinn.

Það að vera í fallegum fötum sem passa og þægilegt er að vera í gefur manni sjálfstraust og reisn. Hver þarf ekki á aðeins meira af því að halda?

 

NR.2 – Berðu virðingu fyrir svengd og seddu.

 

Líkaminn gefur okkur merki  um svengd og seddu. Við erum bara svo oft með hugann við eitthvað annað að við tökum ekki eftir þessum merkjum líkamans. Stundum þurfum við reyndar að læra að hlusta á þessi merki líkamans upp á nýtt því við höfum aflært að hlusta en það er önnur saga.

Gefðu þér leyfi til að fylgja merkjum líkamans. Æfðu þig. Nýttu þér núvitund við matarborðið. Veistu ekkert hvað ég er að tala um? Prófaðu að horfa á þetta myndband um hvernig þú hægir á huga og líkama fyrir máltíð. Það er fyrsta skrefið í að nærast í núvitund. Hægðu á huga og líkama til að geta betur fylgt eftir merkjum líkamans um svengd og seddu.

Þannig sýnirðu líkama þínum virðingu.

 

NR.3 – Slepptu því að bera þinn líkama saman við aðra líkama.

 

Þú veist ekkert um þeirra bakgrunn eða sögu, jafnvel þó þetta sé fólk sem þú telur þig þekkja. Þú ert þú. Þetta er þinn líkami.

Svona fyrir utan að þetta er ekki keppni.

 

NR.4 – Hreyfðu líkama þinn hreyfingarinnar vegna.

 

Við vitum öll að kyrrseta er ekki góð fyrir okkur. Vinnan hefur breyst. Frítíminn hefur breyst. Nú er stórum hluta dagsins eytt fyrir framan skjái.

Við vitum að hreyfing bætir heilsu og geð. Þetta þarf ekki að vera flókið.

Stuttur göngutúr, hléæfingar við tölvuna (t.d. lyfta öxlum upp á eyrum nokkrum sinnum, snúa öxlum og öðrum liðamótum, spenna grindarbotninn), dansa í stofunni, jafnvel með öðrum, teygja úr sér, nokkrar hnébeygjur, nokkrar jógaæfingar, bara hvað sem er.

Allt sem er mótvægi við kyrrsetuna. Rétta úr bakinu, liðka hrygginn, snúa höfðinu í hringi og til hliðanna, losa um mjaðmirnar, fara í sund og þannig má lengi telja.

Hvernig líkar líkama þínum að hreyfa sig? Hvað finnst þér skemmtilegt að gera? Hversu mikla hreyfingu þarftu til að líða vel í þínum líkama? Mundu þriðja atriðið hér.

Finndu út hvað þér finnst skemmtileg, finndu þína hreyfingu – hreyfingarinnar vegna.

 

NR.5 – Talaðu fallega til líkama þíns.

 

Áttu það til að tala niður til líkama þíns, í heild eða ákveðinna líkamshluta? Það gerir lítið annað en að staðfesta óánægju okkar með líkamann. Það er allavega ekki sérstaklega vel til þess fallið að sýna líkama okkar virðingu.

Við ætlum að fara í hina áttina.

Skrifaðu niður lista yfir allt sem þér líkar við við líkama þinn. Finndu lítil sem stór atriði sem þú kannt að meta við líkama þinn.Í hvert skipti sem þú tekur eftir neikvæðri hugsun um líkamann eða líkamshluta tekurðu eitthvað af listanum og setur í staðinn. Þú skiptir sem sagt út neikvæðri hugsun fyrir jákvæða.

Dæmi: Neikvæð hugsun: Lærin á mér eru of stór –  Jákvæð hugsun: Mér líkar við sterku kálfana mína.

Er það of erfitt? Reyndu þá að finna eitthvað sem þú ert þakklát fyrir sem líkami þinn gerir þér kleift að gera s.s. að koma þér milli staða, að lesa þennan texta o.s.frv.

 

NR.6 – Fögnum fjölbreytilegum líkömum – líka þínum.

 

Á hverju ári föngum við fjölbreytileikanum á Gay Pride. Tugir þúsunda mæta niður í bæ og við málum bæinn í öllum regnbogans litum – bókstaflega. Af hverju ætli við eigum svona langt í land með að fagna fjölbreytilegum líkömum? Af hverju viljum við steypa alla í sama mót? og af hverju erum við svona fljót að dæma eftir útlitinu?

Líkamar eru alls konar og koma í öllum stærðum og gerðum. Það er margt sem hefur áhrif á það hvernig við erum byggð s.s. erfðir og umhverfi, hreyfing og næring.

Heilsa sést ekkert endilega utan á fólki. Á sama hátt og það er ekki hægt að álykta að allir grannir eigi við áröskunarsjúkdóma að stríða þá er ekki hægt að álykta að allir feitir hreyfi sig ekki neitt og borði of mikið. Þetta er bara ekki svo einfalt.

Byrjaðu á því að sýna þínum líkama samkennd, velvilja og virðingu. Fagnaðu því sem hann getur gert með þér.

 

NR. 7 – Sýndu líkama þínum umhyggju.

 

Finndu eitthvað sem lætur þér og líkama þínum líða vel.

Farðu í heita pottinn og gufuna í sundi. Farðu í nudd ef þú hefur tök á því. Berðu krem á þig sem láta þér líða vel.

Taktu þér tíma til að fara í bað með baðsalti og olíum, kertaljósum og fallegri tónlist.

Leyfðu þér að dekra við sjálfa þig.

Sýndu líkama þínum að hann sé þess virði – þinn líkami – eins og hann er núna.